stoppleikhopurinn.com
Forsíða arrow Um Leikhópinn arrow Aðstandendur arrow Valgeir Skagfjörð
ForsíðaFréttirSýningarUm LeikhópinnHafa sambandTenglarUmsagnir áhorfenda og myndir
Tilkynning

Starfsfólk Stoppleikhópsins

   2012 - 2013

   

Eggert               Katrín

  

Valgeir             Sigurþór

                 

Margrét             Vignir

 


Valgeir Skagfjörð   Prenta  Netfang 

Valgeir Skagfjörð (Leikari, leikstjóri og kennaranemi.)

 

Leiklistarskóla Íslands frá 1983 - 1987 en áður starfað sem tónmenntakennari við Brekkubæjarskóla á Akranesi og píanókennari við tónlistarskólann, ásamt því að stjórna karlakórnum Svönum frá 1979 - 1982. Stundaði tónlistarnám við Musikaliska Institutet í Stokkhólmi 1978-79.  Leikstjórnarnámsskeið á vegum L.Í. 1989 ( Leiðbeinandi Alexei Visarion frá Rúmeníu.)  Námsskeið í leikritun á vegum Leikskáldafélags Íslands í samvinnu við Menningarstofnun Bandaríkjanna, námsskeið í leikritun og dramatúrgíu hjá Mariönnu Möller frá Helsinki  og þátttaka í tveggja vikna leiksmiðju hjá Eugene ‘O Neill Theatre Center í Bandaríkjunum sumarið 1986 og haustið 1993 námskeið á vegum Theater og dans i norden sem kallaðist Dramatikern i værkstedet svo nokkuð sé nefnt.

Er um þessar mundir í kennaradeild Listaháskóla Íslands í kennsluréttindanámi sem ég mun ljúka vorið 2005.

 

Valgeir hefur starfað við flest það sem snýr að leikhúsi undanfarin tíu ár, leikið, leikstýrt, skrifað og samið tónlist. Einnig fengist við dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi, talsetningu, þýðingar og haldið fjölmörg leiklistarnámsskeið bæði með fullorðnum og unglingum. Hér skal getið nokkurra verkefna:

 

 Nakinn maður og annar í kjólfötum” eftir Dario Fo með leikfélagi fjölbrautarskólans í Garðabæ, að undangengnu 10 daga leiklistarnámsskeiði.

 

Haustið 1987 

Sá yðar sem syndlaus er....”  sjónvarpsleikrit í samvinnu við Þorgeir Gunnarsson kvikmyndagerðarmann fyrir ný stofnaða Stöð2. Undirritaður var handritshöfundur og leikstjóri

 

Skömmu eftir áramótin 1988

sviðsetti hann kabarettinn Næturgalann” sem byggður var á lögum Magnúsar Eiríkssonar og sýndur á Hótel Sögu. Þar naut hann aðstoðar Sigurjóns Jóhannsonar leikmyndateiknara og Gerlu við búninga. Björn Bergsteinn Guðmundsson sá um lýsingu.

 

Þann 20. mars 1988

 Umhverfis jörðina á 80 dögum eftir Jules Verne í leikgerð Bengt Ahlfors hjá Leikfélagi Menntaskólans við Hamrahlíð.

 

Haustið 1988

 Fróði og allir hinir grislingarnir”  eftir Ole Lund Kirkegaard, í samvinnu við Leikfélag Kópavogs. Samdi auk þess alla tónlist og söngtexta. Leikmynd og búninga hannaði Gerla og var vandað til þessarar sýningar í alla staði.  (Gefin var út hljómplata og snælda) Sýningin gekk fyrir fullu húsi fram á vor. Frumsýnt var í lok október. Fróði hefur síðan verið leikinn víða um land.

 

Haustið 1989.

Skrifaði og leikstýrði Hafnarfjarðarevíunni, Leitin að týnda brandaranum”. Samdi einnig megnið af tónlistinni.

 

Febrúar 1990.

Skrifaði og leikstýrði Mini-rokksöngleiknum Hei þú”! fyrir nemendur fjölbrautarskólans í Breiðholti.

 

Haustið 1990

Skítt með ‘a!” Unglingaleikrit með söngvum fyrir Leikfélag Kópavogs. Handrit og tónlist var eftir V.S. Gerla gerði búninga og leikmynd og Pálmi Sigurhjartarson var tónlistarstjóri. Danshöfundur Bryndísar Einarsdóttur. Sýningin var frumsýnd 26.Okt.1990. Skítt með’ða hefur síðan verið leikið hjá Leikfélagi Keflavíkur (1992) og Leikklúbbi Fjölbrautarskólans í Garðabæ. (1996)

 

Hér mætti ef til vill telja fram all framsækinn leiklestur á Hótel Borg í tengslum við Hundadaga 1989  þar sem leiklesið var leikritið “Fangakapall” í leikstjórn höfundar. (Fangakapall var síðar leikinn í útvarpi árið 1992 eftir gagngerðar endurbætur, þá í leikstjórn Hallmars Sigurðssonar. Leikritið var tekið upp hjá RÚVAK.)

 

 

Næstu tvö leikár (90 - 92) starfaði hann hjá Leikfélagi Akureyrar. Á þeim tíma vann hann meðal annara verkefna:

 

1991.

Börn mánans” e. Michael Weller með leikklúbbi verkamenntaskólans á Akureyri

 

Sumarið 1991

var stofnaður leikhópurinn Víg sem var samsuða úr leikfélögum beggja framhaldsskólanna á Akureyri. (MA og VMA) Valgeir skrifaði leikritið Blóðnætur” fyrir hópinn, setti það upp og síðan var það leikið í Lahti í Finlandi í tengslum við samnorrænt vinarbæjarmót sem þar var haldið.

 

26. desember 1991.

Tjútt og tregi”.   Söngleikur fyrir Leikfélag Akureyrar.  Valgeir var ráðinn til að semja og leikstýra verkinu eftir að hafa kynnt hugmyndina fyrir leikhússtjóra og leikhúsráði. Sýningar urðu 30.

 

Febrúar 1992.

Vorið kallar e. Frank Wedekind. Leikklúbburinn Locos. (VMA)

 

Júní 1992.

Galdra-Loftur”   Stytt leikgerð, byggð á leikriti Jóhanns Sigurjónssonar og Þjóðsögu úr safni Jóns Árnasonar. Leikhópurinn Víg. Sýnt á vinabæjamóti í samkomuhúsinu á Akureyri.

 

Október 1993.

Út úr myrkrinu” Verðlaunaeinþáttungur um alnæmi. Sýndar voru um 70 sýningar víðs vegar um land, í skólum og á vinnustöðum. (Alþýðuleikhúsið, Menningar og fræðslusamband alþýðu, Landsnefnd um alnæmisvarnir og Þjóðkirkjan stóðu að sýningunni. Valgeir var bæði höfundur og leikstjóri.

 

Mars 1994 

Með vífið í lúkunum” e. Ray Cooney. Leikflokkurinn Sunnan Skarðsheiðar.

 

Nóvember 1994

Gísl” e. Brendan Behan. Ungmennafélagið Íslendingur, Borgarfirði.

 

Febrúar 1995 

“Hið þögla stríð” , leikin dagskrá  í tilefni af 50 ára afmæli Reykjalundar. (Leikfélag Mosfellssveitar) Handrit, tónlist og leikstjórn.

 

Mars 1995 

“Með hjartað í buxunum” e. Ray Cooney. Leikflokkurinn Sunnan  Skarðsheiðar.

 

Desember 1995 

“Deleríum Búbónis” e. Jónas og Jón Múla Árnasyni. Leikfélag Mosfellssveitar.

 

Janúar 1996  

“Grámann” . Höfundasmiðjan. Leikfélag Reykjavíkur. Sýnt á leynibarnum  í Borgarleikhúsinu. Valgeir var höfundur og leikstjóri.

 

Mars 1996

Uppgerðarasi með duganaðarfasi”, eftir Svölu Arnardóttur. Höfundasmiðja L.R.

 

Apríl 1996   

“Spurning um orðalag” eftir Braga Ólafsson

 

Maí 1996    

“Brenndar varir” eftir Björgu Gísladóttur

 

Ágúst 1996 

Sumar á Sýrlandi” eftir eigin handriti og tónlist Stuðmanna. (Loftkastalinn)

 

Október 1996

“Delríum Búbónis” eftir Jón Múla og Jónas Árnasyni. (Sjónleikjafélagið og Loftkastalinn.)

 

Janúar 1997 

“Leitin Eilífa” eigið leikrit skrifað fyrir Skagaleikflokkinn vegna samnorræns verkefnis (RETT VEST) Þetta var leiklistarhátið ungs fólks í Norður Noregi og var farið með átta manna unglingahóp þangað sumarið 1997, sem jafnframt tók átt í leiksmiðju.

 

Mars 1998. 

“Sjóleiðin til Bagdad” eftir Jökul Jakobsson fyrir Leikdeild ungmennafélags Reykdæla. (Logaland í Borgarfirði)

 

Maí 1999

Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir” eftir : Ólaf Hauk Símonarson fyrir Leikfélag Mosfellssveitar. Sýningin var sýnd á leiklistarhátið í Uddevalla í Svíþjóð. Valgeir samdi nýja tónlist við söngtexta Ólafs Hauks.

 

Október 1999

“Klukkustrengir” eftir Jökul Jakobsson. Leikfélag Akureyrar. Leikmynd og búningar Vignir Jóhannsson.

 

Nóvember 2000
“Saumastofan” eftir  Kjartan Ragnarsson.  Leikdeild Ungmennafélagsins Íslendings.

 

Apríl 2001

“Ball í Gúttó” eftir Maju Árdal. Leikfélag Akureyrar.

 

Fyrir utan ofantaldar sýningar, þá hef ég skrifað önnur leikverk svo sem:

 

“Á sama stað”. (Egg-leikhúsið 1988. Leikstjóri: Ingunn Ásdísardóttir)

 

“Brestir”. (Þjóðleikhúsið 1989. Leikstjóri: Pétur Einarsson) 

 

“Draumar í lit”. (Leikklúbburinn Aristofanes 1988. Leikstjóri: Hjálmar Hjálmarsson)

 

“Skiptistöðin”.  Leikrit um vímuefnavanda ungs fólks. Farandsýning sem sýnd var í skólum í Reykjavík og helstu nágrannabyggðum (Stoppleikhópurinn  nóvember 96. Leikstjóri Þórarinn Eyfjörð)

 

“Á – kafi”. Leikrit um skaðsemi tóbaksreykinga. Farandsýning ætluð efri bekkjum grunnskólans. Unnið fyrir Krabbameinsfélagið og Tóbaksvarnanefnd. (Stopp-leikhópurinn 1997.) Hafði einnig með höndum leikstjórn og tónlist..

 

“Rósa frænka”. Fræðsluleikrit um kynlíf og kynsjúkdómavarnir Sýnt 9. – 10. bekk grunnskólans. Skrifað fyrir Stopp-leikhópinn. Sýningin er styrkt af Landlæknisembættinu og Þjóðkirkjunni.

 

“Píanótíminn” Einþáttungur sem hlaut fyrstu verðlaun í samkeppni á vegum Menor. Verður flutt í Útvarpsleikhúsinu 25 – 28. júní 2001 n.k.

 

“Stígvélaði kötturinn” Leikgerð, tónlist og leikstjórn. Sjónleikhúsið 2002

Sýnt á Litla Sviði Borgarleikhússins og vítt og breitt um landið.

 

“Landnáma” Fræðsluleikrit um landnám Ingólfs og Hjörleifs. Stopp-leikhópurinn 2003

Sýnt í grunnskólum um allt land. (Ætlað miðstigi grunnskólans)

 

“Hans klaufi” (H.C. Andersen) Tónlist og leikstjórn. Stopp-leikhópurinn 2004

Ferðasýning ætluð yngstu börnunum.

 

“Hrafnkelssaga Freysgoða”  Stopp-leikhópurinn 2004

 

 

Að auki hef ég samið og séð um tónlist í  leikhúsi  fyrir utan það sem að framan greinir.

 

Þrettándakvöld (Nemendaleikhúsið ‘86)

Rúnar og Kylliki (Nemendaleikhúsið ‘87)

tveir (Furðuleikhúsið ´95)

Maríusögur (Nemendaleikhúsið ‘95)

Sápa 2 (Kaffileikhúsið ‘95)

Íslenska mafían (Leikfélag Reykjavíkur ‘95-6)

Stopp! (Stoppleikhópurinn ‘96)

Venus/Mars (Draumasmiðjan ‘96) 

Jólin hennar ömmu (Furðuleikhúsið ‘96)

Ball í Gúttó (Leikfélag Akureyrar 2001)

 

 

Við þetta má svo bæta tugum hlutverka Valgeir hefur leikið í Þjóðleikhúsinu, L.R. L.A. og með ýmsum leikhópum svo sem: Íslenska leikhúsið, Frú Emelía, Alþýðuleikhúsið og fleiri.

 

 

 


"Stoppleikhópurinn hefur markað sér svið með því að einbeita sér að unglingum með afburða góðum árangri þrátt fyrir að unglingarnir séu einn erfiðasti hópur áhorfenda sem hægt er að hugsa sér. Sýningar Stoppleikhópsins hafa verið mikilvægt og meðvitað framlag til forvarna og upplýsinga um eiturlyf og kynlíf svo eitthvað sé nefnt"
Miro International Pty Ltd. © 2000 - 2004 All rights reserved. Mambo Open Source is Free Software released under the GNU/GPL License.